Árshátíð Mágusar!

Sett inn 28th Feb 2023 16:30:28 í

 

Facebook Event!

Skráning og frekari upplýsingar

 
Sú árlega hefð þegar við fáum að sleppa bókunum, áhyggjunum og láta gleðina taka okkur út í kvöldið.
Dyrnar munu opna strax klukkan 17:30, sem gefur fólki góðan tíma til að spjalla við samnemendur og skella sér í nokkra drykki áður en dagskráin hefst formlega klukkan 18:30. Þegar dagskráin hefst fá gestir það sem þeir völdu af matseðli, um er að ræða 3 rétta máltíð. (vinsamlegast takið það fram hér að neðan við skráningu hvað verður fyrir valinu)
 
Matseðill:
Fiskseðill????
1. Túnfisk tartar, chili marineruð vatnsmelóna, parmesan kex,
2. Hvítlauksbakaður þorskur, seljurótarmauk, gljáð rótargrænmeti, bjór sýrður laukur, hollandaise
3. Súkkulaði og heslihnetukaka, saltkaramella, ís, hafrakurl
 
Kjötseðill????
1. Nauta Carpaccio, klettasalat, truffluolía, rifinn Feykir
2. Grilluð nautalund, borin fram medium rare, stökkar kartöflur, gljáð rótargrænmeti, bjór sýrður laukur, bernaise
3. Súkkulaði og heslihnetukaka, saltkaramella, ís, hafrakurl
 
Vegan seðill????
1. Kimchi pakora, döðlu og papriku salsa, stökkt grænkál, karsi
2. Innbakað sveppawellington, stökkar kartöflur, gljáð rótargrænmeti, bjór sýrður laukur, rauðvínsgljái
3. 2 sorbetkúlur frá Valdís
 
 
- Gestir fá einnig fríann drykk við komu ????
 
 
En bíddu, það er meira! Veislustjórinn okkar fyrir kvöldið er enginn annar en Snorri Másson. Hann mun halda veislunni gangandi allt kvöldið og skemmta fólkinu.
Og ef það er ekki nóg til að kveikja í spennunni þá verðum við einnig með heitistu artista leiksins í dag....
 
 
LINE UP: ????
 
 
ARON CAN ????
 
 
BIRNIR ????
 
 
CLUBDUB ????
 
 
ERUÐI AÐ MOÐÐAFOKKING SJÁ ÞETTA? HAAAA!!! ÞETTA VERÐUR ROSALEGT....
- Mælum með því að pússa dansskónna vel þar sem þetta verður sögulegt kvöld. ????????
 
 
p.s Það er enginn að fara missa af bardaganum hans Gunna okkar, hann að sjálfsögðu verður sýndur á skjánum á meðan leikar standa. ????
 
 
Þetta er besti viðburður ársins sem þú vilt ekki missa af. Svo, merktu við dagatalið þitt og taktu kvöldið frá. Við getum ekki beðið eftir að sjá þig þar!!
 
 
Verð:
Mágusingar: 11.990 kr.
non-Mágus: 13.990 kr.